Óskalisti
Fólk hefur verið að spyrja mig hvað mig vanti í íbúðina, hvað ég sé að safna og þess háttar. Til að gera langa sögu stutta (sem ég geri nánast aldrei) Þá hef ég ákveðið að gera óskalista yfir það sem mér vantar til að fullkomna heimilið sem og gefa upp þá línu í smávöru og heimilisvöru sem ég er að safna mér..
nr. 1. Kaffihitabrúsa. Ég keypti mér kaffikönnu flotta en nú er vandi á höndum því mér vantar hitabrúsa til að setja á borðið þegar ég býð í kaffiboð.
nr. 2 Allt sem er í rósendale línuni. ég er reyndar búinn að fá vínrekkann og búinn að kaupa mér vatnskönnu og vatnsglösin og svo skotglösin og koníaksglösin en allveg elska þessa línu og er sem sé að safna henni hún er svo falleg og ekki svo dýr. Hvað sem er úr henni mér er allveg sama.
3. Sparistell. Ok þetta er bara svona til að láta fólk vita að ég er að safna sparistelli. Stellið er úr Líf og list í smáralind, man nú ekki allveg hvað það heitir en það er hægt bara að segja við afgreiðslufólkið mér vantar stellið sem Guðmundur er að safna sér og þær fara í tölvuna og finna það. Það er svolítið mikið dýrt. En þegar maður er að safna svona stelli er það eins og gull að fá bara þó það væri ekki nema einn kaffibollaundirdiskur í hvert sinn og þannig mun það ganga þar til að allt stellið er komið. En það er dýrt og er bara svona að láta fólk vita af þessu:)
Nr. 3. Svo vantar mér KitcenAid. Ég er farinn að bjóða fólk svo oft í kaffiboð og eða matarboð og finn það að mér vantar orðið svoleiðis. En ekki fá sjokk þetta er meira svona til mömmu og pabba eða ömmu og afa:) hehe
Nr. 4.Fallega hluti til að setja á veggina hjá mér. Held allveg rosalega upp á Líf og list í smáralind og líka elska Húsgagnadeildina í NEXT. Keypti t.d. öll loftljósin þar. Þessir hlutir mega bæði vera bara skrautmunir og líka til að setja kerti í.
Þá er það komið. Það á allveg örugglega eftir að bætast í þennan lista sem og fækka. Þetta er bara hugmyndabanki. Allar gjafir sem ég þigg eru þáðar með miklu þakklæti. Þetta er bara svona til að gefa upp það sem ég er að safna og vantar, fyrir þá sem ekki hafa hugmynd hvað það er sem hægt er að gefa mér. Takk Takk.
Vonandi skemmtir þú þér oooobbbboslega vel um helgina.Já og að þú fáir gott veður (als ekki rigningu)Hér hefur ekki komið rigning síðan þú varst á staðnum,kvótinn kláraðist sennilega þá.Dísel Kræst.
Knús og kveðjur til þín.