Aðalvalmynd

ÉG

Auglýsing

Könnun

Ætti ég að sækja um í Flugþjónaskólanum?

Vinir

Óskalisti

Fólk hefur verið að spyrja mig hvað mig vanti í íbúðina, hvað ég sé að safna og þess háttar. Til að gera langa sögu stutta (sem ég geri nánast aldrei) Þá hef ég ákveðið að gera óskalista yfir það sem mér vantar til að fullkomna heimilið sem og gefa upp þá línu í smávöru og heimilisvöru sem ég er að safna mér..

nr. 1. Kaffihitabrúsa. Ég keypti mér kaffikönnu flotta en nú er vandi á höndum því mér vantar hitabrúsa til að setja á borðið þegar ég býð í kaffiboð.

nr. 2 Allt sem er í rósendale línuni. ég er reyndar búinn að fá vínrekkann og búinn að kaupa mér vatnskönnu og vatnsglösin og svo skotglösin og koníaksglösin en allveg elska þessa línu og er sem sé að safna henni hún er svo falleg og ekki svo dýr. Hvað sem er úr henni mér er allveg sama.

3. Sparistell. Ok þetta er bara svona til að láta fólk vita að ég er að safna sparistelli. Stellið er úr Líf og list í smáralind, man nú ekki allveg hvað það heitir en það er hægt bara að segja við afgreiðslufólkið mér vantar stellið sem Guðmundur er að safna sér og þær fara í tölvuna og finna það. Það er svolítið mikið dýrt. En þegar maður er að safna svona stelli er það eins og gull að fá bara þó það væri ekki nema einn kaffibollaundirdiskur í hvert sinn og þannig mun það ganga þar til að allt stellið er komið. En það er dýrt og er bara svona að láta fólk vita af þessu:)

Nr. 3. Svo vantar mér KitcenAid. Ég er farinn að bjóða fólk svo oft í kaffiboð og eða matarboð og finn það að mér vantar orðið svoleiðis. En ekki fá sjokk þetta er meira svona til mömmu og pabba eða ömmu og afa:) hehe

Nr. 4.Fallega hluti til að setja á veggina hjá mér. Held allveg rosalega upp á Líf og list í smáralind og líka elska Húsgagnadeildina í NEXT. Keypti t.d. öll loftljósin þar. Þessir hlutir mega bæði vera bara skrautmunir og líka til að setja kerti í.

Þá er það komið. Það á allveg örugglega eftir að bætast í þennan lista sem og fækka. Þetta er bara hugmyndabanki. Allar gjafir sem ég þigg eru þáðar með miklu þakklæti. Þetta er bara svona til að gefa upp það sem ég er að safna og vantar, fyrir þá sem ekki hafa hugmynd hvað það er sem hægt er að gefa mér. Takk Takk.

Teljari

GAY PRIDE 2008Guðmundur Arnarson

Hinsegin

Í H E I L A N D A G

Hinsegin dagar í Reykjavík er sameiginleg hátíð þess fjölbreytta

hóps fólks sem kallar sig samkynhneigt, tvíkynhneigt eða transsexúal.

Samt yrðu Hinsegin dagar svipur hjá sjón ef ekki kæmi til

stuðningur þess gríðarlega fjölda Íslendinga sem slæst í hópinn á

götum Reykjavíkur á hátíðisdaginn. Þar er á ferð öll flóra íslensks

samfélags – ungir og aldnir úr öllum stéttum. Þar eru ekki bara vinir

okkar og fjölskyldur, heldur líka „bláókunnugir“ sem ekki tengjast

okkur vina- eða blóðböndum, en finna samt á Hinsegin dögum rétta

tækifærið til að láta í ljósi stuðning við baráttuna fyrir betra lífi.

Fátt yljar okkur eins og að sjá allar þessar þúsundir Íslendinga slást

í hópinn í gleðigöngunni niður Laugaveg. Sá samhugur er einsdæmi

í heiminum.

Í þakklætis- og virðingarskyni vilja Hinsegin dagar bjóða öllum

landsmönnum og erlendum gestum að gerast hinsegin í heilan dag.

Við hvetjum ykkur til að styrkja litina í regnboganum og auka á

gleðina með því að bregða ykkur á spariskóna og klæðast einhverju

því í tilefni dagsins sem þið hafið aldrei áður þorað að ganga í

niður Laugaveg. Samkvæmiskjóllinn með pallíettunum sem fékk að

rykfalla inni í skáp frá því á árshátíð Sveinafélags húsasmiða 1967

– hans tími er aftur upp runninn! Eða kjólfötin góðu sem aldrei

eru viðruð nema á stöku frímúrarafundi eða á árlegum vorkonsert

Fóstbræðra. Að ekki sé minnst á alla dýrlegu hattana, hawaii-skyrturnar,

bítlaskóna og blómahálsbindin sem eitt sinn þóttu fín, en eru

nú litin hornauga af smáborgurum þessa heims.

Það er ekki bara hinsegin fólk sem lendir stundum inni í skáp,

heldur líka alls kyns dýrindis fatnaður. Hann á sinn tilverurétt.

Leyfum honum að sleppa út úr skápnum, þótt ekki sé nema einu

sinni á ári.

Njótið dagsins!

Skrifa athugasemd

Klukkan

Nýjast á HumorPix

Funny Images, A morning of awkwardness Funny Images, Vintage beer ad Funny Images, Smart Kid Funny Images, Keeping the Book Open Funny Images, Santa is real Funny Images, Lingerie soda design

Félög