Aðalvalmynd

ÉG

Auglýsing

Könnun

Ætti ég að sækja um í Flugþjónaskólanum?

Vinir

Óskalisti

Fólk hefur verið að spyrja mig hvað mig vanti í íbúðina, hvað ég sé að safna og þess háttar. Til að gera langa sögu stutta (sem ég geri nánast aldrei) Þá hef ég ákveðið að gera óskalista yfir það sem mér vantar til að fullkomna heimilið sem og gefa upp þá línu í smávöru og heimilisvöru sem ég er að safna mér..

nr. 1. Kaffihitabrúsa. Ég keypti mér kaffikönnu flotta en nú er vandi á höndum því mér vantar hitabrúsa til að setja á borðið þegar ég býð í kaffiboð.

nr. 2 Allt sem er í rósendale línuni. ég er reyndar búinn að fá vínrekkann og búinn að kaupa mér vatnskönnu og vatnsglösin og svo skotglösin og koníaksglösin en allveg elska þessa línu og er sem sé að safna henni hún er svo falleg og ekki svo dýr. Hvað sem er úr henni mér er allveg sama.

3. Sparistell. Ok þetta er bara svona til að láta fólk vita að ég er að safna sparistelli. Stellið er úr Líf og list í smáralind, man nú ekki allveg hvað það heitir en það er hægt bara að segja við afgreiðslufólkið mér vantar stellið sem Guðmundur er að safna sér og þær fara í tölvuna og finna það. Það er svolítið mikið dýrt. En þegar maður er að safna svona stelli er það eins og gull að fá bara þó það væri ekki nema einn kaffibollaundirdiskur í hvert sinn og þannig mun það ganga þar til að allt stellið er komið. En það er dýrt og er bara svona að láta fólk vita af þessu:)

Nr. 3. Svo vantar mér KitcenAid. Ég er farinn að bjóða fólk svo oft í kaffiboð og eða matarboð og finn það að mér vantar orðið svoleiðis. En ekki fá sjokk þetta er meira svona til mömmu og pabba eða ömmu og afa:) hehe

Nr. 4.Fallega hluti til að setja á veggina hjá mér. Held allveg rosalega upp á Líf og list í smáralind og líka elska Húsgagnadeildina í NEXT. Keypti t.d. öll loftljósin þar. Þessir hlutir mega bæði vera bara skrautmunir og líka til að setja kerti í.

Þá er það komið. Það á allveg örugglega eftir að bætast í þennan lista sem og fækka. Þetta er bara hugmyndabanki. Allar gjafir sem ég þigg eru þáðar með miklu þakklæti. Þetta er bara svona til að gefa upp það sem ég er að safna og vantar, fyrir þá sem ekki hafa hugmynd hvað það er sem hægt er að gefa mér. Takk Takk.

Teljari

Þetta er svo mikilvægt.Guðmundur Arnarson

WELCOME TO GAY PRIDE 2008.Guðmundur Arnarson

GAY PRIDE 2008Guðmundur Arnarson

Hinsegin

Í H E I L A N D A G

Hinsegin dagar í Reykjavík er sameiginleg hátíð þess fjölbreytta

hóps fólks sem kallar sig samkynhneigt, tvíkynhneigt eða transsexúal.

Samt yrðu Hinsegin dagar svipur hjá sjón ef ekki kæmi til

stuðningur þess gríðarlega fjölda Íslendinga sem slæst í hópinn á

götum Reykjavíkur á hátíðisdaginn. Þar er á ferð öll flóra íslensks

samfélags – ungir og aldnir úr öllum stéttum. Þar eru ekki bara vinir

okkar og fjölskyldur, heldur líka „bláókunnugir“ sem ekki tengjast

okkur vina- eða blóðböndum, en finna samt á Hinsegin dögum rétta

tækifærið til að láta í ljósi stuðning við baráttuna fyrir betra lífi.

Fátt yljar okkur eins og að sjá allar þessar þúsundir Íslendinga slást

í hópinn í gleðigöngunni niður Laugaveg. Sá samhugur er einsdæmi

í heiminum.

Í þakklætis- og virðingarskyni vilja Hinsegin dagar bjóða öllum

landsmönnum og erlendum gestum að gerast hinsegin í heilan dag.

Við hvetjum ykkur til að styrkja litina í regnboganum og auka á

gleðina með því að bregða ykkur á spariskóna og klæðast einhverju

því í tilefni dagsins sem þið hafið aldrei áður þorað að ganga í

niður Laugaveg. Samkvæmiskjóllinn með pallíettunum sem fékk að

rykfalla inni í skáp frá því á árshátíð Sveinafélags húsasmiða 1967

– hans tími er aftur upp runninn! Eða kjólfötin góðu sem aldrei

eru viðruð nema á stöku frímúrarafundi eða á árlegum vorkonsert

Fóstbræðra. Að ekki sé minnst á alla dýrlegu hattana, hawaii-skyrturnar,

bítlaskóna og blómahálsbindin sem eitt sinn þóttu fín, en eru

nú litin hornauga af smáborgurum þessa heims.

Það er ekki bara hinsegin fólk sem lendir stundum inni í skáp,

heldur líka alls kyns dýrindis fatnaður. Hann á sinn tilverurétt.

Leyfum honum að sleppa út úr skápnum, þótt ekki sé nema einu

sinni á ári.

Njótið dagsins!

Gay Pride...2008Guðmundur Arnarson

KOMIÐ YKKUR ÚT ÚR SKÁPNUM OG SKELLIÐ YKKUR Í STUÐIÐ

JÁ herrar mínir og frúr þá fer að líða að skemmtilegustu hátíð sem er haldin er á ÍSLANDI engri annari en GAY PRIDE 2008. Hátið verður sett 7 ágúst og sjálft pridið fer fram þann 9 ágúst. Síðast komu um 70.000 manns svo þetta er allsherjar útihátið þar sem gleðin ein er við völd. Ég sjálfur mun nú ekki vera í gönguni heldur mun ég klæða mig upp í hvítt föt og setja á mig vængi og vera með videócamerinu á lofti en mun samt geta kisst alla og knúsað. Eftir gönguna verður svo komið sér upp pikknik á Arnarhóli með ávextum,ostum og kexi og auðvitað einn (jafnvel fleiri) kaldan brjór. Þetta verður sem sé allgjör snild. Vona að sem flestir sjái sér fært til að koma þó það væri ekki nema bara til að ég geti gefið ykkur stórt knúss..
Hlakka til að sjá ykkur...Ykkar GUMMI..

myspace:)Guðmundur Arnarson

Jæja þá er maðurinn loksins kominn með myspace síðu:) Endilega kíkið á hana.

                                                   www.myspace.com/gummi26

ÁstGuðmundur Arnarson

Þetta er kannski ekki fyrir mjög ungt fólk:) En mér finnst þetta bara svo fallegt að ég verð að deila þessu með ykkur..Afhverju er ekki hægt að sýna ást okkar á þennan hátt í kvikmyndum og sjónvarpi. Þarf alltaf að vera eithvað svo mikil feluleikur þegar kemur að ást og kynlífi gay fólks.








THIS IS MY LIFE:)Guðmundur Arnarson

YESS YESS YESS YESS:) GLÆSILEGT ÍSLAND:) LOKSINS GAMAN AFTUR....

MinningarguðsþjónustaGuðmundur Arnarson


Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin sunnudaginn 25. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.
 Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00. 

Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day.

Séra Hjörtur Magni Jóhannesson leiðir guðsþjónustuna.
 

Formaður Alnæmissamtakanna, Gunnlaugur I. Grétarsson, flytur ávarp.
 

Tónlist:
Söngdívan Margrét Pálmadóttir mætir með söngfugla sína, þau munu gleðja gesti og leiða söng. 
 

Boðið verður upp á veitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu.
 Mætum vel og stundvíslega!

HIV-Ísland 

páskarGuðmundur Arnarson

Kæru vinir og vandamenn
Gleðilega Páska.

Sigur og Tap.Guðmundur Arnarson

Eurobandið sigraði glæsilega núna á laugardaginn. Rosalega var ég stoltur. Mér var sagt núna í dag að þau hefðu unnið með 27.000 atkvæða mun. Þau sem sé rústuðu þessi. Til hamingju Eurobandi..

En Slæmu fréttirnar eru þær að Ég fékk ekki flugþjónastarfið:( ég var reyndar allveg búinn að undirbúa mig undir það þar sem það sóttu um 780 manns og bara um 13 stöður. Ég bað um að umsókninn mín verði áfram opinn og ég mun bara reyna aftur næst:)

Kveðja Gummi
Síða 1 af 7

Klukkan

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special!

Félög